It looks like you are using an older version of Internet Explorer which is not supported. We advise that you update your browser to the latest version of Microsoft Edge, or consider using other browsers such as Chrome, Firefox or Safari.

1. Samþykki og notkun

  • Þær upplýsingar og leiðbeiningar sem Novartis setur fram (eins og skilgreint er í kafla 2 hér að neðan) á þessari vefsíðu koma ekki í staðinn fyrir fylgiseðil ENERZAIR® BREEZHALER® og þær leiðbeiningar um notkun sem þar er að finna. Skoðið ávallt fylgiseðilinn og leiðbeiningar um notkun til að fá ítarlegar upplýsingar um lyfið.
  • Í þessum upplýsingum er hvorki boðið upp á né er það ætlunin að bjóða upp á sjúkdómsgreiningu einstaklinga eða sértæka meðferðarráðgjöf fyrir sjúklinga, en þú skalt alltaf leita með slíkt til læknisins eða heilbrigðisstarfsmanns.
  • Aðgangur þinn og notkun þessarar vefsíðu, www.breezhaler-asthma.eu/enerzair („vefsíðan“) er háð gildandi lagalegum tengslum á milli þín og Novartis, eftirfarandi notendaskilmálum ásamt upplýsingunum (eins og þær eru skilgreindar í kafla 3 hér að neðan) sem fram koma í fylgiseðlinum.
  • Með því að fá aðgang að og nota þessa vefsíðu, samþykkir þú án takmarkana og fyrirvara þessa notendaskilmála og samþykkir án fyrirvara að fara að þeim og staðfestir að þessi samningur kemur í stað allra annarra samninga milli þín og Novartis um notkun þessarar vefsíðu og hafa þeir hvorki gildi né áhrif. Ef þú samþykkir ekki þessa notendaskilmála, er þér ekki heimilt að nota vefsíðuna.

2. Upplýsingar um okkur og þessa vefsíðu

Þessi vefsíða er ætluð til þjálfunar í notkun ENERZAIR® BREEZHALER® innöndunartækisins innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þessi vefsíða er prófuð, stýrt og uppfærð af Novartis Pharma AG í samstarfi við Novartis Europharm Limited (handhafa markaðsleyfis innan EES fyrir ENERZAIR® BREEZHALER® innöndunartækið) og evrópsk hlutdeildarfélög þeirra (vísað til í heild sem „Novartis“). Novartis er alþjóðlegt fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu og er skráð í Sviss. Aðalaðsetur viðskipta fyrirtækisins er P.O. Box CH – 4002 Basel, Sviss.

Þessi vefsíða er einungis ætluð til notkunar fyrir fullorðna sem hafa fengið ávísað, í samræmi við lög og reglur í því landi sem þú býrð í, ENERZAIR® BREEZHALER® innöndunartæki til notkunar. Með notkun þessarar vefsíðu staðfestir þú að þér hafi verið ávísað ENERZAIR® BREEZHALER® innöndunartæki til notkunar.

Ekki skal túlka þær upplýsingar sem fram koma á þessari vefsíðu sem kynningu eða auglýsingu fyrir nein lyf eða notkun neinna lyfja sem ekki er heimiluð í lögum eða reglugerðum í heimalandi þínu.

3. Notkun upplýsinga

Einungis má nota þessa vefsíðu í þeim tilgangi að fá aðgang að leiðbeiningum um notkun ENERZAIR® BREEZHALER® innöndunartækis („tilgangur“), þ.m.t. öllum texta, myndum, hljóðskrám og myndböndum („upplýsingar“) að því gefnu að (a) notkun upplýsinganna sé til
upplýsingar fyrir sjúkling og ekki í viðskiptalegum tilgangi eða eingöngu til persónulegra nota og (b) ekki má dreifa, breyta, senda áfram, endurnota, endurbirta eða nota upplýsingarnar í viðskiptalegum tilgangi eða til að afla félagstengsla (e. social networking) nema að fengnu skriflegu leyfi frá Novartis.

Þér er ekki gefin heimild eða veittur réttur í upplýsingunum eða höfundarréttur frá Novartis eða öðrum aðila. Novartis áskilur sér allan rétt sem ekki er skýrt kveðið á um í þessum skilmálum.

4. Höfundaréttur/Vörumerki/Séreignarréttur

Allt efni á þessari síðu er í eigu Novartis fyrirtækjasamstæðunnar og er varið höfundarrétti.

Ganga skal út frá að vöruheitið sem kemur fram á vefsíðunni, hvort sem það er skrifað með stórum stöfum, skáletrað eða ásamt tákni vörumerkis ® séu vörumerki í eigu Novartis. Öll vöruheiti sem birt eru skáletruð á þessari vefsíðu eru í eigu eða notuð með veittu leyfi til
Novartis.

Þessi síða getur einnig innihaldið eða vísað til einkaleyfa, upplýsinga sem á er einkaréttur, tækni, vara, aðferða eða annars séreignaréttar í eigu Novartis og/eða þriðja aðila. Novartis er eigandi eða leyfishafi allra hugverkaréttinda á þessari vefsíðu og alls efnis sem birtist á henni. Þessi verk njóta verndar höfundarréttarlaga og -sáttamála á heimsvísu. Öll slík réttindi eru áskilin. Engin heimild eða réttur á slíkum vörumerkjum, höfundarrétti, einkaleyfum, viðskiptaleyndarmálum, tækni, vörum, aðferðum eða öðrum séreignarrétti er gefinn eða veittur þér. Öll notkun þessara vörumerkja, á nafni fyrirtækisins Novartis, nema eins og heimilað er í þessum skilmálum, er stranglega bönnuð.

5. Gildandi lög, afleiðingar

Þessir notendaskilmálar og notkun þín á þessari vefsíðu falla undir viðeigandi lög og reglugerðir EES sem og lög í þínu heimalandi án tillits til lögfræðilegra meginreglna.

Ef Novartis fær upplýsingar um að þú hafir brotið notendaskilmálana sem kveðið er á um í þessari lagalegu yfirlýsingu getur Novartis samstundis krafist úrbóta. Ef Novartis hefur hlotið skaða af broti þínu getur fyrirtækið einhliða leitast eftir að frá greiddar skaðabætur af þinni hendi.

6. Breytingar

Novartis áskilur sér rétt til að breyta þessum notendaskilmálum hvenær sem er með breytingum á síðunni. Vinsamlegast athugið að slíkar breytingar kunna að vera gerðar einhliða og án þess að vera tilkynntar fyrirfram. Með því að halda áfram að nota vefsíðuna eftir slíkar breytingar, samþykkir þú, án skilyrða og með fullum skilningi að fylgja og vera bundinn af þessum skilmálum eins og þeim er breytt. Þú ættir því að heimsækja síðuna með reglulegu millibili til að skoða gildandi notendaskilmála sem þú ert bundin af og til að athuga hvort einhverjar breytingar eða uppfærslur hafi verið gerðar.

7. Niðurfelling einstakra ákvæða

Ef einhver kafli eða ákvæði þessara notendaskilmála reynast vera ógild mun slík ógilding ekki hafa áhrif á framfylgd annarra kafla eða
ákvæða þessara notendaskilmála.

8. Afsal

Ef ekkert er aðhafst af okkar hálfu með tilliti til brota á þessum notendaskilmálum afsalar Novartis sér ekki þeim réttindum að lögsækja vegna svipaðra brota eða annarra brota.

9. Tilkynning aukaverkana

Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á ífylgiseðlinum. Með því að tilkynna aukaverkanir er hægt að hjálpa til við að auka upplýsingar um öryggi lyfsins.

Takk fyrir að nota vefsíðuna okkar.